29.11.2010 22:32
Valborg
Þetta skip bar beinin eins og sagt er stundum, við SV-strönd landsins.fyrir rúmum 50 árum. 3 menn í þorpi rétt hjá strandstað keyptu skipið (flakið) fyrir 25.000 kr. Hvað hét skipið og hver var strandstaðurinn?? Skipið hét Valborg eins og kom fram í athugasemd Heiðars. Og staðurinn var Garðpskaga. Eins og hann og Valur sögðu. Valborg var smíðuð hjá Köge Værft í Köge Danmörk sem Inger fyrir J.Lauritzen 1922 það mældist 728 ts 1215 dwt. Loa: 73.10 m brd 10.90 J.Lauritzen skiftir um nafn á skipinu 1942 og skírir það Inger Lau Þeir selja skipið P.Molander í Finnlandi 1948. Það strandar við Garðskaga þ 18 jan 1958. Og varð þar til, 3 menn i Sandgerði keypti skipð fyrir 25.000 nokkru seinna..I sambandi við björgun mannana var talið að þarna hafi konur verið meðal skipbrotsmanna,en þær voru 3,.Skipið hafði komið með timbur til landsins þ.a.á m til Borgarnes. Og ég man að fólk í plássinu safnaði bæði mat og fötum handa fólkinu, Það var víst fátt um fína drætti um slíkt um borð í skipinu. Skipið var á leið frá Vestmannaeyjum til Keflavíkur þegar það strandaði

Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 1091
Gestir í dag: 369
Flettingar í gær: 1304
Gestir í gær: 369
Samtals flettingar: 261763
Samtals gestir: 12421
Tölur uppfærðar: 11.5.2025 13:19:02