20.05.2017 20:08
Sjómannadagur
Nú eru 18 dagar til Sjómannadags, Dags  þar sem 
þeirra sjómanna er minnst  sem bíðu ósigur í lífsbaráttu sinni. Menn sem
 fórnuðu lífi sínu til að brauðfæða þessa þjóð.Þá
 er manni hugsað til þeirra sem siglu heimsálfa á milli á litlum skipum í
 WW2 Menn sem sáu um að mannlíf hér á landi hélst lifandi og færðu 
björgina heim Eftir að fiskimennirnir höfðu aflað galdeyrirnum til að 
kaupa hana. Að mínu mati er ekki hægt að gera upp á milli Farmanna og 
Fiskimanna hvað uppbyggingu þjóðlífs á landinu varðar En samnefnið er 
einfaldlega Sjómenn. 
Það eru dimm ský á lofti í málefnum þeirra í
 dag og þessvegna þarf þjóðin að sýna þeim samstöðu á baráttu degi 
þeirra. Það vita allir að Farmannastéttini er að blæða út og er í 
andastlitrunum.Hver á sökina veit ég hreinlega ekki alveg. Þó mig gruni 
margt. En ég var í sjálfskipaðri útlegð í 15 ár og hef því ekki þá 
þekkingu á þessum málum að ég geti tjáð mig um það. En að aðalerindinu 
Frumkvöðlarnir hvað skip varðar. Þá er fyrst að telja þetta skip
 sjálft "Óskabarnið" (mig minnir að þetta nafn hafi byrjað þá þessu 
skipi en svo flutts yfir á fyrirtækið er frá leið) Gullfoss Það var 
byggt hjá Kjöbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 
fyrir hið nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1414,0  ts 
1200,0 dwt Loa: 70.10,m brd: 10.70 Farþegar 74.,Skipið var kyrrsett í 
Kaupmannahöfn þegar Þjóðverjar gerðu innrás í Danmörk  9 apríl 1940,
 
Esja sem fór í hina frægu Petsamoferð,
Áhöfnin
 kom svo heim um haustið með Esjunni í hinni frægu Petsamoferð, Skipið 
"fannst"svo í Kiel eftir stríð 1945 í slæmu ástandi. Eimskip hafði 
fengið tryggingafé skipsins greitt og hafði því ekki lengur umráð 
yfir því En félagið var að hugsa um að fá skipið til baka en það 
reyndist ekki borga sig enda var þá bygging á nýju skipi komin á 
koppinn., 2 íslendingar keyptu skipið og komu því til Gautaborgar og 
léta gera það upp. Þegar því var lokið seldu þeir Skipafélagi Föroyja í 
Færeyja skipið. Og fékk skipið þá nafnið Tjaldur. Það var selt til 
Þýskaland og rifið 1953 og þá undir nafninu Tjaldur gamli
Hér nýr:
Hér mætast þeir félagar Sá gamli og nýji Gullfoss
Næsta
 skip átti stutta og sorglega sögu Skipið var byggt hjá Kjöbenhavns 
Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 einnig  fyrir hið 
nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1374.0 ts 1575.0 dwt.Loa: 
69,0 m brd: 10,70 m. Farþegar 56. Þess má geta að Goðafoss var 1sta 
íslenska skipið sem búið var loftskeytatækjum Endalokin voru sorgleg 
hvað skipið varðaði. Það strandaði við Straumnes 30-11-1916 og var þar 
til Síðast þegar ég vissi mátti sjá leifar af skipinu á strandstaðnum
Goðafoss nýr
Næst
 er skip sem byggt var hjá Nylands Verksted í Kístianíu Noregi1904 sem 
Profit fyrir þarlenda aðila Eimskipafélag Íslands kaupir skipið 1917 og 
skírir Lagarfoss. Það mældist: 1211 ts 1600 dwt.Loa:68.60 m brd: 10,30 
Farþegar 32 Skipið var rifið í Kaupmannahöfn 1949
Næst
 er það skip sem bygt var hjá Burmeister & Wain Kaupmannahöfn 
Danmörk 1911 sem Manchioneal fyrir noska aðila Það mældist: 1654,0 ts 
2010,0 dwt Loa: 77.80 m brd: 10.90 m Eimskipafélag Reykjavíkur kaupa 
skipið 1934 og skíra Reykjafoss Skipið er selt til Tyrklands 1949 og 
skírt Nazar 1955 fær það nafnið Cerrahzade. Það var rifið í Tyrklandi 
1967
Næst
 er skip sem var byggt hjá Haarlemsche Sceheepswerf Haarlem Hollandi 
1919 sem Merwede fyrir þarlenda aðila. Áður en það var afhent frá 
skipasmíðastöðinni fékk það nýtt nafn Amstelstroom. Það mældist 1451.0 
ts 2060.0 dwt. Loa: 82,30 m brd: 11,0 m Skipið var búið 2 gufuknúnum 
krönum og mun hafa verið 1sta íslenska skipið með þann útbúnað.1934 
kaupir skipafélagið Ísafold skipið og skírir Eddu. Eimskipaféla Íslands 
kaupir öll hlutabréf í Ísafold 1941 og fylgir skipið með í kaupunum Það 
er þá skírt Fjallfoss  1951 er skipið selt til Ítalíu og fær nafnið 
Siderea 1957 selt til Saudi Arabíu og fær nafnið Ommalgora. 1968 setl 
þar innanlands og fær nafnið Star of Taif .Skipið þótti orðið úrelt 1983
 og var sökkt út af Jeddah
